Risinn úr rekkju...!
Það eru ár og aldir síðan síðasta færsla var rituð hér inn og er löngu kominn tími til að vekja síðuna upp af værum blundi.
Einsog sennilega flest okkar vita þá tryggðum við veru okkar í 2. deildinni í fyrra í síðasta leik gegn toppliði ÍR, sem voru fyrir þann leik taplausir í deildinni. Strákarnir okkar gerðu sér lítið fyrir og unnu þann leik 1-2.
Leiktíðin í ár hófst um síðustu helgi, en þá komu vestfirðingarnir úr BÍ/Bolungarvík í heimsókn og unnum við þann leik 4-3 í dramatískum leik.
Hvíti Herinn var enn í vetrardvala þá, en ætlar sér að eiga fanta dag á morgun fimmtudag þegar við rúllum í Garðinn og spilum við erkifjendurna í Víði!!
Næsti leikur er á morgun semsagt, fimmtudaginn 21. maí '09, á Víðisvellinum í Garði og verður flautaður á kl:14:00 að staðartíma ;)
Hvíti Herinn ætlar að vera með upphitun fyrir leik á morgun og læt ég fylgja auglýsingu frá okkur...

Fimmtudaginn 21.maí munu Reynismenn fara í heimsókn til nágranna okkar í Garðinum og eins og alltaf er mikil eftirvænting í loftinu þegar þessi tvö lið mætast !
Hvíti Herinn ætlar að mæta grimmur til leiks og verður upphitun á pallinum á Bogabraut 8 (Marinó) kl: 12:00 að hádegi en leikurinn hefst kl: 14:00.
Við ætlum að grilla pulsur og er ÖLLUM Reynismönnum boðið, þú þarft ekki að vera skráð/ur í stuðningsmannaliðið J
Eina skilyrðið er hvítur klæðnaður og þú færð pulsu, jíhaa !!
Við þurfum ykkar hjálp í stúkunni og því tilvalið að mæta í grillið og æfa lögin með okkur J
Bílaröðin leggur af stað í Garðinn í kringum 13:30.
Hvíti Herinn-
ÁFRAM REYNIR!!
Gillarinn out!

Að fá stig útur þeim leik myndi tryggja okkar veru í deildinni, en ef að leikurinn tapast að þá verðum við að stóla á hagstæð úrslit úr leikjum ÍH - Tindastóls og Hamar - Höttur.
sérstaklega eftir ævintýralegan leik um síðustu helgi gegn Hvöt. 4-0 undir og tæpur hálftími eftir og ná að jafna... Þetta sýnir karakter, því getur enginn neitað. Vonandi að strákarnir taki þennan vilja og baráttu með sér í leikinn á morgun og þá getur allt skeð....
setti svo þriðja með skalla eftir flotta fyrirgjöf frá Mumma.
